Landmannaleið (F225)
Ferðaleiðin er í gegnum svæði þar sem mjög vel sést til vindlundarins. Ekki sést til vindmyllanna eftir fyrstu 5 km.
Staðbundin fyrstu 5 km og varanleg. Verulega neikvæð áhrif.
Ljósmynd:
- Dagsetning: 25.06.2015
- Tími:12:15

Mat á umhverfisáhrifum byggir á vindmyllum sem eru 149 m háar, miðað við spaða í efstu stöðu og að vinnslugeta sé um 3,2 MW. Fyrir 200 MW vindlund gerir það alls 63 vindmyllur. Til að leggja mat á hámarksáhrif fyrirhugaðs vindlundar er byggt á mestu dreifingu vindmylla innan svæðis og að vindmyllum sé dreift jafnt um svæðin þannig að myllur eru við alla jaðra svæðanna / ystu mörk.
Áningarstaðir
Yfirlit yfir myndatökustaði
Hægt er að smella á kortið til að ferðast á milli áningarstaða.

Skyggða svæðið á kortinu sýnir fjölda sjáanlegra vindmylla á svæðinu